Nýjast á Local Suðurnes

Vilja byggja 74 íbúðir við Hafnargötu 12 – Hvað finnst þér?

Hrífufang ehf., eigandi húseignarinnar og lóðarinnar við Hafnargötu 12 hefur óskað eftir afstöðu Reykjanesbæjar til byggingar 74 íbúða í þriggja hæða fjölbýlishúsi með bílakjallara á lóðinni.

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar tók málið fyrir á fundi sínum í vikunni og veitti Hrífufangi heimild til að gera tillögu að breytingu á gildandi deiluskipulagi á sinn kostnað og leggja fyrir ráðið til frekari umfjöllunar. Ráðið lagðist þó gegn því að byggingar á lóðinni verði hærri en þrjár hæðir.

Málið hefur töluvert borið á góma á samfélagsmiðlunum og eru menn langt í frá sammála í afstöðu sinni um byggingu fasteignar af þessari stærðargráðu á svæðinu – En hvað finnst þér?

Á að leyfa byggingu 74 íbúða við Hafnargötu 12

View Results

Loading ... Loading ...