Nýjast á Local Suðurnes

Tap hjá Grindvíkingum í bikarúrslitum

Mynd: Kkd. Grindavíkur

Stjarnan lagði Grindavík að velli í úrslitaleik Geysisbikarsins í körfuknattleik með 14 stiga mun, 89-75.

Leikurinn var þó mun jafnari en lokatölur gefa til kynna og skiptust liðin á að hafa forystu allt fram í þriðja leikhluta að Stjörnumenn sigu framúr. Grindvíkingar áttu svo ágætis áhlaup undir lok leiksins en það dugði ekki til.