Nýjast á Local Suðurnes

Hljóðbygjan og Sportrásin bjóða á leik Keflavíkur gegn KR

Hljóðbylgjan, svæðisútvarp Suðurnesja, og Sportrasin.is bjóða stuðningsmönnum Keflavíkur á leik Keflavíkur og KR á mánudaginn kl. 18:00.  Þú mætir bara merktur Keflavík í félagsheimilið fyrir leik og færð miða fyrir þig og fjölskylduna.

Það þarf ekki að fjölyrða um mikilvægi leiksins og við treystum á að stuðningsmenn Keflavíkur fjölmenni á leikinn  og styðji strákana, segir í tilkynningu frá Sportrásinni.

Það verður dagskrá í félagsheimilinu frá kl. 17:00 en þar verður stuðningsmönnum boðið upp á vöfflur með rjóma, kaffi og ávaxtadrykki fyrir börnin á meðan birgðir endast.  Þjálfararnir koma í heimsókn, fara yfir byrjunarliðið og svara spurningum stuðningsmanna.

Nú er um að gera að skella í sig rjúkandi vöfflum fyrir leik og mynda góða stemningu á pöllunum, segir einnig í tilkynningunni.