Ungur ökumaður stöðvaður á 123 km. hraða á Njarðarbraut
![logreglan sekt](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/08/logreglan-sekt.png?resize=620%2C264)
Ungur ökumaður mældist aka á 123 km. hraða á Njarðarbraut í Njarðvík þar sem hámarkshraði er 50 km. á klukkustund. Hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða og þarf að auki að greiða 130.000 króna fjársekt. Þá fær hann þrjá refsipunkta í ökuferilsskrá. Vegna ungs aldurs hans gerði lögreglan á Suðurnesjum barnavernd viðvart um málið.
Auk ökumannsins unga voru sextán ökumenn kærðir fyrir hraðakstur. Fáeinir til viðbótar óku án ökuréttinda og nokkuð var um stöðvunarskyldubrot.