Nýjast á Local Suðurnes

Ungir hljómborðsleikarar safna til styrktar langveikum börnum í Reykjanesbæ

Laugardaginn 14. apríl kl. 11:00 til 14:00 munu nemendur í hljómborðsdeild Tónlistarskóla Reykjanesbæjar halda sex tónleika í Bergi Hljómahöll. Markmiðið er að safna fjármagni til styrktar langveikum börnum í Reykjanesbæ. Tónleikaröðin hefur yfirskriftina Frá barni til barns. Selt verður inn á tónleikana gegn frjálsum framlögum, hægt að kaupa ýmsa listtengda muni á basar og kaupa sér kaffi og með því á kaffihúsi sem starfrækt verður meðan á tónleikum stendur.

Með tónleikaröðinni vill skólinn og kennarar sýna börnum úr hópi nemenda nýja hlið á tónlistarnám, að það fái aukinn tilgang. Einnig að nemandi skynji sig sem hluta af gefandi heild. Ekki síður er mikilvægt að börnin finni styrk sinn við að leggja sig fram, hvort sem um er að ræða próf, tónleika eða hvert annað tilefni til tónlistarflutnings. Ágóðinn er því fyrir alla; nemandann, foreldra og skólann auk þess sem hægt er að láta gott af sér leiða til langveikra barna í Reykjanesbæ.

Allir þeir sem tengjast nemanda í hljómborðsdeild geta komið listmunum, hand- og hugverki á basarinn. Styrktarreikningur verður opinn fram til 14. maí þar sem tekið verður við frjálsum framlögum til verkefnisins. Reikningsnúmerið er 0142-15-010366 og kenntitala reiknings 3006584829.