Tveir ökumenn teknir próflausir undir áhrifum fíkniefna
Ökumaður sem mældist á 141 km hraða á Reykjanesbraut um helgina hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Auk þess var hann grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöð.
Annar ökumaður viðurkenndi akstur án ökuréttinda. Hann var jafnframt grunaður um fíkniefnaakstur og í bifreið hans fundust meint fíkniefni á tveimur stöðum.