Tveir fluttir með þyrlu eftir bílveltu á Suðurstrandarvegi

Klukkan 08:24 barst lögreglunni á Suðurnesjum tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Suðurstrandarvegi.
Fjölmennt lið viðbragðsaðila frá lögreglunni á Suðurnesjum, Brunavörnum Suðurnesja og Slökkviliði Grindavíkur fóru á vettvang.
Ljóst var á vettvangi að um bílveltu var að ræða og tveir einstaklingar alvarlega slasaðir. Slasaðir voru fluttir með sjúkrabifreið til móts við þyrlu Landhelgisgæslunnar sem er að flytja þá á sjúkrahús, segir í tilkynningu frá lögreglu.
Unnið er að vettvangsrannsókn í samstarfi við tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Frekari upplýsingar verða ekki veittar að svo stöddu.



















