Töluverð skjálftavirkni
Jarðskjálfti af stærðinni 3,2 varð skammt vestur af Fagradalsfjalli laust fyrir klukkan tíu í morgun, skjálftinn kom í kjölfar annars og stærri skjálfta sem reið yfir við Kleifarvatn um klukkan hálf sex í morgun.
Töluverð skjálftavirkni hefur verið þessa vikuna á Reykjanesskaga, ekki síst úti fyrir skaganum við Reykjanestá.