Þurrt og bjart framundan – Hiti á bilinu 12-18 stig
Það verður skýjað en að mestu þurrt, en bjart fyrir hádegi á suðvestur- og vesturlandi. Hiti á bilinu 12 til 18 stig en svalara úti við norður- og austurströndina. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.
Á morgun er gert ráð fyrir austanátt, 8-13 metrum á sekúndu við suðurströndina, annars hægari vindur. Skýjað með köflum og dálítil rigning syðst um kvöldið. Hiti verður 8-18 stig, hlýjast vestanlands en svalast við austurströndina.