Þorbjörn fær 10 milljónir
Ríkisstjórnin samþykki á fundi sínum í morgun að veita björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík styrk upp á 10 milljónir króna.
Fjárveitingunni er ætlað að efla áframhaldandi starf björgunarsveitarinnar og í viðurkenningar- og virðingarskyni við starfsemina, sem hefur verið í lykilhlutverki undanfarin ár vegna viðvarandi eldsumbrota á Reykjanesi.