Plancius kemur til Keflavíkur

Skemmtiferðaskipið Plancius kemur í Keflavíkurhöfn núna á fimmtudaginn 11. september. Skipið leggst að bryggju kl. 08:00 og verður í höfninni til kl. 17:00. Á meðan viðdvöl skipsins stendur verður upplýsingabás mannaður á bryggjunni þar sem gestir geta nálgast ýmsar upplýsingar um bæinn og svæðið.
Plancius er 90 metrar að lengd og um 3.400 brúttótonn. Um borð eru um 90 farþegar auk 50 manna áhafnar. Farþegarnir eru fjölbreyttur hópur frá ýmsum löndum og á mismunandi aldri, margir hverjir spenntir að skoða bæinn, versla og njóta menningar og afþreyingar.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir verslanir, veitingastaði og aðra þjónustuaðila í Reykjanesbæ til að bjóða upp á þjónustu fyrir erlenda gesti. Ef þú ert með þjónustu, vörur eða afþreyingu sem gæti höfðað til farþega og áhafnar, segir í tilkynningu á vef Reykjanesbæjar.