Nafn bifhjólamannsins sem lést
Maðurinn sem lést í slysi á mótum Reykjanesbrautar og Hafnarvegar í Reykjanesbæ hét Jóhannes Hilmar Jóhannesson. Hann átti heima í Sóltúni 2 í Garði. Frá þessu er greint á vef mbl.is.
Jóhannes var 34 ára gamall og lætur eftir sig sambýliskonu og þrjú börn.
Reykjanesbraut var lokuð í um þrjár klukkustundir í gær vegna slyssins sem átti sér stað um klukkan sjö að morgni.