Hópslysaáætlanir fyrir Suðurnes uppfærðar

Stjórnskipulagsáætlun aðgerðarstjórnar á Suðurnesjum (AST) og ný atvikaáætlun vegna hópslysa fyrir embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum hafa nú hlotið formlega undirritun allra hlutaðeigandi og tóku gildi þann 1. júlí 2025.
Um er að ræða mikilvægan áfanga í umfangsmikilli vinnu sem hófst snemma árs 2024. Markmið verkefnisins var að uppfæra og einfalda viðbragðsáætlanir í umdæminu og auka samhæfingu milli viðbragðsaðila á Suðurnesjum. Töluverð vinna hefur verið lögð í þróun og endurskoðun þessara áætlana í víðtæku samstarfi og samráði við þá viðbragsaðila sem að áætlununum koma.
Kynningarfundur um nýju áætlanirnar verður haldinn meðal viðbragsaðila með haustinu og stefnt er að æfingu í framhaldi til að prófa framkvæmd þeirra, segir í tilkynningu á vef lögreglu.
Áætlanirnar er hægt að nálgast á vef Almannavarna (www.almannavarnir.is) undir liðnum útgefið efni