Hefja vinnu við fráveitu – Tímabundið rask fyrir íbúa

Framkvæmdir eru að hefjast við endurnýjun fráveitulagnar á afmörkuðum kafla Suðurgötu í Sandgerði, merktum rauðu á kortinu. Markmiðið er að bæta rennslisöryggi og draga úr líkum á bakflæði.

Á meðan á verkinu stendur má búast við tímabundnu raski:

Umferð takmörkuð á svæðinu og innkeyrslur geta lokast tímabundið; ekki verður unnt að leggja í þær meðan unnið er. Bílastæði innan svæðisins geta verið óaðgengileg þegar unnið er beint fyrir framan hús. Gangandi aðgengi verður tryggt.


Unnið verður á hefðbundnum dagvinnutíma; eitthvað ryk og hávaði getur myndast, segir í tilkynningu á vef Suðurnesjabæjar.
Þá eru íbúar vinsamlega beðnir að virðs merkingar og gætia barna og gæludýra.

Hafa má samband við Umhverfismiðstöð Suðurnesjabæjar – sími 425 3000 afgreidsla@sudurnesjabaer.is.