Fluttur á HSS eftir veltu á Garðvegi
Bílvelta varð í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Ökumaður sem ók bifreið sinni eftir Garðvegi missti stjórn á henni með þeim afleiðingum að hún valt. Ökumaðurinn fann til eymsla eftir óhappið og var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Enn fremur varð umferðaróhapp þegar ökumaður sem var á ferð eftir Sandgerðisvegi náði ekki beygju sem á honum er og missti bifreiðina út af veginum, þar sem hún endaði á hjólunum.
Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að fleiri umferðaróhöpp hafi orðið í umdæminu á undanförnum dögum en þau munu öll hafa verið minni háttar.