Nýjast á Local Suðurnes

Eldur kviknaði í bílhræjum

Mynd: Brunavarnir Suðurnesja

Slökkviliðið var kallað út í nótt kl. 04:00 þar sem eldur hafði kviknað í 40 feta opnum gám sem var með bílhræjum, dekkjum og öðrum úrgangi.

Í tilkynningu frá Brunavörnum Suðurnesja segir að þegar komið var á staðinn hafi verið mikill eldur í gámnum. Fengin var grafa til að taka bílhræin uppúr gámnum og velta honum síðan til að auðvelda slökkvistarf. Slökkvistarfi var lokið um kl. 05:30. Ekki er ljóst hver eldsupptök voru en lögregla fer með rannsókn málsins.