Domino´s bætir þjónustu og býður bílastæðaafendingu
Veitingahúsakeðjan Domino’s hefur hafið svokallaða bílastæðaafhendingu, nýjan kost fyrir þá sem vilja sækja sér pítsu án þess að þurfa að fara út úr bílnum. Þessi valkostur verður í boði á milli kl. 17:00 og 21:00 alla daga næstu vikur.
Einfalt er að fá afhent beint í bílinn, eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan. Fyrst er pöntun sett saman í appi eða á vefnum og í lokaskrefinu sé hægt að smella í „ég vil fá afhent út í bíl“ ef valið er að greiða fyrirfram. Þá sé mikilvægt að skrifa inn bílnúmer, tegund og lit áður en pöntun er staðfest. Þegar viðskiptavinur hefur svo fundið bílastæði nálægt inngangi þarf að opna appið eða vefinn í símanum, og smella á „ég er mætt(ur)“, þá fær starfsfólk tilkynningu um að viðskiptavinur sé á svæðinu og kemur út með pöntunina um leið og hún er tilbúin.