Bjóða út 20.000 fermetra lóðaframkvæmdir
Ríkiskaup, fyrir hönd framkvæmda- og eignasviðs Reykjanesbæjar óskar eftir tilboðum í lóðarfrágang vegna við nýs grunnskóla við Dalsbraut í Innri-Njarðvík.
Lóð Stapaskóla er tæpir 2 Ha eða um 20.000 m2 og skiptist í skólalóð og leikskólalóð. Lóðin er fjölbreytt með góðu aðkomusvæði og sleppistæðum ásamt stóru bílastæði við aðkomu skólans frá Unnardal.