Úlfur Blandon tekur við Þrótti Vogum
Úlfur Blandon hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks Þróttar Vogum í knattspyrnu. Samnngurinn gildir næstu tvö árin, en Úlfur tekur við af Brynjari Gestssyni sem hætti störfum fyrir félagið á dögunum.
Úlfur er 38 ára gamall og var þjálfari meistaraflokks karla hjá Gróttu árið 2016 og kom liðinu upp í Inkasso-deildina eftir eins árs dvöl í 2. deildinni. Síðastliðið sumar þjálfaði hann meistaraflokk Vals í kvennaknattspyrnu og enduðu Valskonur í 3. sæti Pepsi-deildarinnar, sigruðu Lengjubikarinn og urðu Reykjavíkurmeistarar.
Úlfur er með UEFA-A þjálfaragráðu.
Þróttur Vogum spilar í fyrsta sinn í 2. deild á næsta ári eftir að hafa lent í 2. sæti 3. deildar í ár.