sudurnes.net
Úlfur Blandon tekur við Þrótti Vogum - Local Sudurnes
Úlfur Blandon hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks Þróttar Vogum í knattspyrnu. Samnngurinn gildir næstu tvö árin, en Úlfur tekur við af Brynjari Gestssyni sem hætti störfum fyrir félagið á dögunum. Úlfur er 38 ára gamall og var þjálfari meistaraflokks karla hjá Gróttu árið 2016 og kom liðinu upp í Inkasso-deildina eftir eins árs dvöl í 2. deildinni. Síðastliðið sumar þjálfaði hann meistaraflokk Vals í kvennaknattspyrnu og enduðu Valskonur í 3. sæti Pepsi-deildarinnar, sigruðu Lengjubikarinn og urðu Reykjavíkurmeistarar. Úlfur er með UEFA-A þjálfaragráðu. Þróttur Vogum spilar í fyrsta sinn í 2. deild á næsta ári eftir að hafa lent í 2. sæti 3. deildar í ár. Meira frá SuðurnesjumÞorvaldur þjálfar Keflavík næstu tvö árinÞróttarar fagna – Frítt á völlinnYngri flokkalið Njarðvíkinga kláruðu vetrarvertíðina með stælFimm Íslandsmeistaratitlar til Keflavíkur í skotfimiKeflavík heimsækir Íslandsmeistarana í bikarnumRóbert og Nihad þjálfa GrindavíkurstúlkurRagnheiður Sara í fjórða sæti – Fær um fimm milljónir króna í verðlaunTommy Nielsen þjálfar Víði GarðiNjarðvíkingar fá öflugann frákastaraVíðismenn sigruðu og Reynismenn gerðu jafntefli