Þrettán ára Njarðvíkingur æfir með Rapid Vín
Þrettán ára Njarðvíkingur, Erlendur Guðnason, er þessa dagana staddur í Austurríki þar sem hann mun dvelja hjá Rapid Vín við æfingar.
Hjá Rapid mun Erlendur æfa með U13 akademíu liðinu í rúma viku við glæsilegar aðstæður. Guðni Erlendsson faðir Erlendar og einn af þjálfurum hjá knattspyrnudeild Njarðvíkur er með í för og mun nota tækifærið og fylgjast með þjálfun hjá akademíunni.
Feðgarnir nýttu tækifærið og heilsuðu upp á Njarðvíkinginn Arnór Ingva Traustason sem leikur með liðnu.