Nýjast á Local Suðurnes

Heiðrún og Bjarni íþróttafólk UMFN 2018

Árleg uppskeruhátíð UMFN fór fram þann 27. desember síðastliðinn, en þetta kvöld er tileinkað öllum sem stunda íþróttir hjá UMFN.  Heiðrún Fjóla Pálsdóttir og Bjarni Darri Sigfússon voru valin íþróttafólk UMFN 2018, en þau eru bæði iðkendur hjá Júdódeild UMFN.

Hver deild valdi innbyrðis eina konu og einn karl sem stóðu sig best í sinni grein á árinu og úr þeim var valið íþróttafólk UMFN 2018. Í ár voru margir framúrskarandi en aðeins þau tvö sem hver grein valdi eiga möguleika á því að vera valið íþróttafólk 2018.

“UMFN er afar heppið að eiga mikið af framúrskarandi íþróttafólki í nánast öllum greinum í íslensku íþróttalífi og félagið stækkar með hverju ári þökk sé ykkur hvort sem þið eruð stuðningsmenn, sjálfboðaliðar, iðkendur, foreldrar eða þjálfarar þið spilið öll mikilvægt hlutverk og gerið félagið okkar betra, segir í tilkynningu frá félaginu.”

Hér fyrir neðan eru nöfn verðlaunahafa úr hverri grein:

 

Fyrir Körfuknattleiksdeild:

Maciej Baginski

Vilborg Jónsdóttir

 

Fyrir Júdódeild: glíma

Heiðrún Fjóla Pálsdóttir

Bjarni Darri Sigfússon

 

Fyrir Júdódeild: júdó

Ingólfur Rögnvaldsson

Heiðrún Fjóla Pálsdóttir

 

Fyrir Sunddeild:

Eydís Ósk Kolbeinsdóttir

Fannar Snævar Hauksson

 

Fyrir Knattspyrnudeild:

Magnús Þór Magnússon

 

Fyrir Þríþrautardeild

Guðlaug Sveinsdóttir

Tomasz Bogdansson Trojanowski

 

Fyrir Kraftlyftingardeild MASSI:

Halldór Jens Vilhjálmsson

Íris Rut Jónsdóttir

 

Fyrir Ólympískar lyftingar MASSI:

Katla Björk Ketilsdóttir

Emil Ragnar Ægisson