Nýjast á Local Suðurnes

Jazzfjelag heldur tónleika – Ókeypis aðgangur

Kvartett Reynis Sigurðssonar heldur tónleika á vegum Jazzfjelags Suðurnesjabæjar á bókasafni Sandgerðis á öskudag. Reynir og félagar ætla að flytja þjóðhátíðalög og fleiri lagaperlur Oddgeirs Kristjánssonar (1911 – 1966) í léttum jazz útsetningum.

Ókeypis er á tónleikana sem hefjast klukkan 20.

Flytjendur:

Reynir Sigurðsson, víbrafónn
Guðmundur Pétursson, gítar
Gunnar Hrafnsson, kontrabassi
Einar Scheving, Trommur