Nýjast á Local Suðurnes

Leikskólinn Laut í Grindavík fékk Grænfána í þriðja sinn

Mynd: Leikskólinn Laut í Grindavík

Þann 29.júní fékk Leikskólinn Laut í Grindavík afhentann Grænfánann í þriðja sinn. Börnin komu saman og í sameiningu var fáninn dreginn að húni. Síðan var boðið upp á grænt grænmeti og ávexti í tilefni dagsins. Markmið verkefnis af þessu tagi er meðal annars að:

• Bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku.
• Efla samfélagskennd innan skólans.
• Auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu og utan.
• Styrkja lýðræðisleg vinnubrögð við stjórnun skólans þegar teknar eru ákvarðanir sem varða nemendur.
• Veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál.
• Efla alþjóðlega samkennd og tungumálakunnáttu.
• Tengja skólann við samfélag sitt, fyrirtæki og almenning

Næstu tvö árin verður unnið með þemað: „Flag í fóstur“ En þá velur hver heimastofa einhvern stað í nærumhverfi leikskólans. Síðan munu börn og kennarar í sameiningu græða upp það svæði. Fleiri myndir frá deginum má sjá á heimasíðu Lautar.