Nýjast á Local Suðurnes

Reykjanesbær leigir íbúum matjurtakassa

Íbúar í Reykjanesbæ geta nýtt sér frábæra aðstöðu og fengið matjurtakassa til afnota fyrir 5.000 kr. fyrir sumartímabilið.

Afmarkaðir reitir fást endurgjaldslaust, þeir reitir eru staðsettir hjá Grófinni í Keflavík þar sem matjurtagarðarnir voru staðsettir áður. Öll aðstaða er á ábyrgð leigjenda og Reykjanesbær tekur enga ábyrgð á aðstöðunni. Vatn er aðgengilegt á svæðunum. Garðáhöld, útsæði og plöntur fylgja ekki ræktunarkössunum.

Um 30 matjurtagarðar verða leigðir út á vegum Reykjanesbæjar og hægt er að sækja um þá á póstfangið matjurtargardar@reykjanesbaer.is