Nýjast á Local Suðurnes

Opið fyrir umsóknir í styrki frá Góðgerðarfest Blue

Opið er nú fyrir umsóknir í styrki frá Góðgerðarfest Blue Car Rental. Félagasamtök, stofnanir og öll þau sem starfa að mikilvægum samfélagslegum verkefnum eru hvött til að sækja um.

Góðgerðarfestið hefur á undanförnum árum orðið mikilvægur vettvangur til að styðja góð málefni í okkar nærsamfélagi. Á síðasta ári söfnuðust rúmlega 25 milljónir króna sem runnu óskiptar til 17 málefna. Meðal þeirra sem hlutu styrki voru Krabbameinsfélag Suðurnesja, Þroskahjálp, Hæfingarstöðin, Björgin og fleiri mikilvæg verkefni sem vinna ómetanlegt starf, segir í tilkynningu á vef félagsins.

Hver umsókn skiptir máli og gerir okkur kleift að styðja þau mikilvægu málefni sem þurfa á aðstoð að halda. Við tökum með þakklæti á móti öllum umsóknum, segir einnig.

👉Sækja um styrk

Jafnframt viljum við þakka öllum þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa lagt söfnuninni lið á undanförnum árum. Án ykkar væri þetta ekki mögulegt. Við hlökkum til að halda áfram þessari vegferð og styrkja enn fleiri góð málefni árið 2025, segir í tilkynningunni.