Mikið í boði fyrir börnin í vetur

Nú er opið fyrir skráningu í íþróttir og tómstundir í Reykjanesbæ og er margt spennandi í boði fyrir alla aldurshópa. Öll ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem áhuginn liggur í íþróttum, listum, útivist eða annarri tómstundastarfsemi.
Frístundavefurinn frístundir.is veitir yfirsýn yfir allt það fjölbreytta sem í boði er í Reykjanesbæ. Þar er einfalt að sía niðurstöður eftir aldri og staðsetningu, og því geta íbúar Reykjanesbæjar valið „Reykjanesbær“ til að sjá það sem er í boði.
Á vefnum má einnig finna hugmyndir að skemmtilegum stöðum fyrir útivist og samveru. Við hvetjum alla íbúa til að kynna sér úrvalið og skrá sig tímanlega.
- Skoðaðu úrvalið á frístundir.is og veldu „Reykjanesbær“ til að sjá það sem er í boði hér.
- Skoðið hvatagreiðslur fyrir foreldra barna á aldrinum 4 til 18 ára og 67 ára og eldri hér