Loka uppsáturssvæði í Gróf

Uppsáturssvæðið við smábátahöfnina í Gróf verður aflagt þann 15. ágúst næstkomandi og eru eigendur og umráðamenn báta, bátakerra og á öðrum búnaði eru beðnir um að fjarlægja viðkomandi hluti fyrir þann tíma.
Byggingarframkvæmdir eru að hefjast á svæðinu á næstunni, segir í tilkynningu frá hafnarstjóranum í Reykjanesbæ. Eigendum smábáta sem þurfa á uppsátri að halda er bent á að hafa samband við Reykjaneshöfn í síma 420 3224.