Frægir taka þátt í afmælisveislu 11 ára flóttastelpu sem vísað verður úr landi
Ýmsir hafa boðið fram aðstoð sína við framkvæmd skemmtiatriða í afmælisveislu Hanyie, 11 ára flóttastelpu, sem býr í Reykjanesbæ, en stendur til að verði vísað úr landi ásamt föður sínum á næstu vikum, þar á meðal söngkonan Þórunn Antonía. Feðginin mega eiga von á því að fá tveggja daga fyrirvara áður en þeim er vísað úr landi.
„Þórunn Antonía bauðst til að syngja; Húlladúllan ætlar að vera með sýningu og kenna fólki að húlla og svo hafa strákar boðist til þess að útbúa dýr úr blöðrum,“ segir Guðmunur Karl Karlsson, einn skipuleggjenda í samtali við mbl.
Til stendur að halda veisluna þann 2. ágúst næstkomandi og er hægt að fylgjast með framvindu mála hér. Stofnaður hefur verið söfnunarreikningur í nafni Guðmundar þar sem hægt er að leggja inn aur í afmælisgjöf fyrir Hanyie. Ekki er mögulegt að stofna reikning í hennar eigin nafni og heldur Guðmundur því utan um reikninginn. Þeir sem vilja gefa Hanyie afmælisgjöf geta lagt inn á reikning: 0513-14-406615 á kennitölu 091082-5359.