Færa strætó nær miðbænum

Reykjanesbær mun á næstunni gera breytingu á leið R1 í almenningssamgöngukerfinu. Breytingin er gerð til að bæta aðgengi að miðbænum og gera þannig íbúum og gestum auðveldara að nálgast þjónustu og verslun.

Þrátt fyrir breytinguna helst tímataflan óbreytt og hefur breytingin því engin áhrif á ferðaáætlun.

Hvað breytist og hvenær?
Vagninn sem áður keyrði frá Vesturgötu um Kirkjuveg og upp Skólaveg mun nú:

  • Fara niður Vesturgötu að Hafnargötu,
  • Aka upp Aðalgötu,
  • Halda áfram um Sólvallagötu og upp Skólaveg, líkt og áður.

Við þessa breytingu:

  • Fellur út stoppistöðin „Kirkjuvegur“
  • Bætist við ný stoppistöð við „Hafnargötu“

Breytingin tekur gildi mánudaginn 8. desmber næstkomandi.