Búast við seinkunum á öllum strætóleiðum

Vegna snjókomu í og versnandi færðar má búast við seinkunum á öllum leiðum strætó í Reykjanesbæ í dag, þriðjudaginn 28. október.
Ef veðrið versnar frekar gæti GTS þurft að endurskoða eða breyta akstursleiðum, sérstaklega í Grænásbrekku og á einstökum leiðum þar sem aðstæður geta orðið erfiðar, segir í tilkynningu. Fyrirtækið mun gera sitt allra besta til að halda þjónustunni gangandi eins og mögulegt er og upplýsa farþega um allar breytingar sem kunna að verða.




















