Víðir semur við spænskan markvörð úr Pepsí-deildinni
Spænski markvörðurinn Cristian Martínez er genginn í raðir knattspyrnuliðis Víðis í Garði og mun spila með liðinu í 2. deildinni á komandi tímabili.
Martínez, sem er 30 ára gamall, lék með KA í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð og tímabilin þrjú þar á undan lék hann í marki Víkings í Ólafsvík og var valinn leikmaður ársins hjá félaginu 2016 og 2017.
Hann lék tólf leiki með KA-mönnum í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð en hann varð fyrir meiðslum um mitt tímabil.