Nýjast á Local Suðurnes

Kynna drög að framtíðarsýn um Sjóarann síkáta

Sjóarinn síkáti fer fram í 25. sinn á næsta ári. Grindavíkurbær hefur undanfarið unnið drög að framtíðarsýn fyrir hátíðarhöldin sem byggir á samtali við hagaaðila og bæjarbúa. Meðal annars var horft til niðurstöðu vefkönnunar sem framkvæmd var í júní síðastliðnum.

Við mótun stefnu um Sjóarann síkáta er horft til framtíðar og tekið mið af þróun hátíðarinnar undanfarin ár. Þannig er horft til þess sem vel hefur tekist til með en lagt upp með að mæta væntingum íbúa Grindavíkur um áframhaldandi þróun hátíðarinnar. Horft er til þess að framtíðarsýnin verði jafnframt sáttmáli um afmörkun hátíðarinnar og grundvöllur ákvarðanatöku á gildistímanum.

Drög að framtíðarsýninni má kynna sér hér.