Ungur piltur tekinn með dóp og hníf
Ungur piltur var stöðvaður af lögreglu um helgina og reyndist hann hafa bæði kannabisefni og hníf í fórum sínum. Lögregla gerði hvort tveggja upptækt og færði til eyðingar.
Nokkrir ökumnenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Sá sem hraðast ók mældist á 150 km/klst. þar sem hámarkshraðinn var 90 km/klst.