Stálu vespu og létu greipar sópa í töskugeymslu
Piltar sem komust inn í töskugeymslu í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni létu greipar sópa. Þeir stálu meðal tveimur fartölvum, þremur farsímum, hleðslusnúrum, usb-lyklum og dýrum merkjafatnaði úr töskunum.
Piltarnir fóru nokkrar ferðir í geymsluna og notuðu við þær vespu sem einn þeirra hafði stolið nokkrum dögum áður. Lögreglan á Suðurnesjum hafði hendur í hári piltanna og var þýfinu, sem fannst hjá þeim, komið í réttar hendur. Þeir játuðu verknaðinn.