Nýjast á Local Suðurnes

Rýma hús í Njarðvík vegna sprengiefnis

Lögreglan á Suðurnesjum þarf að grípa til rýmingaraðgerða vegna gamals sprengiefnis sem fannst í gámi á iðnaðarsvæði við íbúðarhverfi í Njarðvík. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að íbúar sem búa innan 110 metra radíusar þurfa að yfirgefa heimili sín.

Rýming þessi sé öryggisráðstöfun til að tryggja öryggi íbúa sem búa á nálægum svæðum. Íbúar við eftirfarandi götur þurfa að rýma heimili sín:

Bakkastígur nr. 10 – 12 – 12a – 12b.

Þórustígur nr. 9-13-15-18-20-22-24-26-28

tilkynningunni kemur jafnframt fram að þeir sem búa innan 400 metra radíusar þurfi að halda sig innandyra frá klukkan fjögur í dag og þangað til frekari fyrirmæli og upplýsingar koma frá lögreglu. Þetta eigi við um íbúavið Njarðarbraut og innan þess milli Krossmóa og Borgarvegar.

„Við biðlum til íbúa á Suðurnesjum að gefa sérfræðingum og öðrum viðbragðsaðilum rými til að vinna og jafnframt að sýna biðlund. Við munum senda frá okkur tilkynningu þegar íbúar geti snúið aftur heim eða þegar lokunum verður aflétt,“ segir í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.