Eldur í stórum timburhaug

Klukkan 02:37 í nótt var slökkviliðið kallað út vegna elds í stórum timburhaug í Helguvík. Tók um 40 mínútur að ná stjórn á eldinum. Þar sem erfitt er að fá vatn á svæðinu var kallað eftir aðstoð frá slökkviliði Grindavíkur sem kom með tankbíl, auk þess sem starfsmenn á frívakt voru boðaðir út.
Á vettvangi voru notaðir þrír dælubílar, körfubíll, tveir tankbílar og flutningsbíll sem kom með fleiri slöngur. Einnig voru fengnar vinnuvélar á svæðið til að krabba úr haugnum og gera slökkvistarfið aðgengilegra og skilvirkara.
Við slökkvistarfið voru notaðir um 120.000 lítrar af vatni. Lokið var við slökkvistörf um klukkan 07:00 í morgun, og nú stendur yfir frágangur og yfirferð á búnaði, segir í Facebook-færslu Brunavarna Suðurnesja.





















