Nýjast á Local Suðurnes

Páll Óskar fræddi vinnuskólakrakka um einelti

Fjölmargir nemendur vinnuskóla Reykjanesbæjar sóttu fyrirlestur hjá Páli Óskari í sumar

Pàll Óskar og Magnús í Marita fræðslunni fjölluðu um einelti fyrir krakkana í Vinnuskólanum og þàtttakendur í nàmskeiðinu Kàtir krakkar á dögunum.

Páll Óskar hélt flottan fyrirlestur

Páll Óskar hélt flottan fyrirlestur

Pàll Óskar sagði sögu sína sem þolandi eineltis en besti vinur hans hætti að vera vinur þegar hann komst að því að Palli kynni ekki fótbolta. Upp frà því sat Palli einn alla skólagönguna. Palli þótti of undarlegur fyrir stràkana og màtti ekki sitja hjà stelpunum.

Pàll Óskar lagði àherslu à að byggja ætti undir hæfileika hvers og eins og að krakkar mættu aldrei gefast upp – það væru alltaf til leiðir út úr vandamàlum.

Magnús fræddi frà sjónarhorni geranda og sagði að hann sæi mjög mikið eftir að hafa lagt jafnaldra sína í einelti à sínum æskuàrum.

Frumkvæði að fræðslunni kemur frà Gyðu og Steinari frà katirkrakkar.is.