Nýjast á Local Suðurnes

Um 600.000 erlendir ferðamenn heimsóttu Reykjanesbæ – Skortir afþreyingu og þjónustu

Alls er talið að um 570 þúsund erlendir ferðamenn hafi heimsótt Reykjanesbæ árið 2018 þar sem rúmur helmingur þeirra kom á tímabilinu maí til september. Flestir heimsóttu staðinn vegna nálægðar hans við flugvöllinn og Bláa lónið en heimsóknin var einnig gjarnan hluti af lengri ferð um landið.

Um 52% ferðamanna töldust líklegir til að mæla með Reykjanesbæ sem áfangastað, en það sem helst hvatti ferðamenn til meðmæla var fegurð staðarins þó staðsetning hans og viðmót heimamanna hafi einnig haft talsverð áhrif. Af þeim sem voru hlutlausir eða töldust ólíklegir til að mæla með staðnum sögðu flestir að of lítið væri um að vera og að auka þyrfti framboð afþreyingar og þjónustu á staðnum. Samgöngur og verð á ferðaþjónustu þyrftu auk þess að batna til að þeir yrðu líklegri til meðmæla.

Meðalútgjöld ferðamanna á sólarhring mældust 18.400 kr. í Reykjanesbæ Útgjöldin voru hæst í flokki veitinga og matvöru. Í langflestum tilvika (78%) var megintilgangur ferðarinnar frí og ferðafélagarnir fjölskylda og vinir. Rúmur helmingur ferðamanna notaði vefsíður til að leita upplýsinga um Reykjanesbæ en um þriðjungur þeirra fékk upplýsingar frá vinum og ættingjum. Bretar og Bandaríkjamenn