Nýjast á Local Suðurnes

Tekinn á 170 km/h með ungt barn í bílnum – Sviptur á staðnum og tilkynntur til barnaverndar

Ökumaður sem mældist aka á 170 km hraða á Reykjanesbraut í gær var sviptur ökuréttindum á staðnum. Einnig var send tilkynning til barnaverndarnefndar þar sem hann var með ungt barn í bílnum.

Þá fjarlægði lögreglan á Suðurnesjum skráningarnúmer af sjö bifreiðum um helgina, en þær voru ýmist óskoðaðar eða ótryggðar.

Átta ökumenn voru teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefna – eða ölvunarakstur. Einn þeirra var með kannabisefni á gólfi bifreiðar sinnar og annar hafði áður verið sviptur ökuréttindum.

Afskipti voru svo höfð af ökumönnum sem virtu ekki stöðvunarskyldu eða töluðu í síma án handfrjáls búnaðar.