Fresta heitavatnslokun

HS Veitur hafa ákveðið að fresta fyrirhugaðri lokun á heitu vatni í Ytri-Njarðvík, Keflavík og Suðurnesjabæ, sem átti að vera framkvæmd í kvöld um óákveðinn tíma.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að veðurfar hafi sett strik í reikninginn og því verði ný tímasetning framkvæmdarinnar auglýst um leið og hún liggur fyrir.

Þá segir að markmið HS Veitna sé ávallt að lágmarka áhrif framkvæmda á íbúa og tryggja öryggi starfsfólks.