Ætla að draga úr óleyfisbúsetu í Reykjanesbæ

Ljósmynd: Reykjanesbær.is / OZZO

Reykjanesbær vinnur nú í nánu samstarfi við Lögregluna á Suðurnesjum og Brunavarnir Suðurnesja að því að draga úr óleyfisbúsetu í sveitarfélaginu Um er að ræða búsetu í húsnæði sem ekki er ætlað til íbúðar, svo sem atvinnu- eða iðnaðarhúsnæði, eða húsnæði sem ekki hefur hlotið öryggisúttekt.

Í tilkynningu segir að markmiðið sé að tryggja að húsnæði sem notað er til búsetu uppfylli viðeigandi kröfur laga og reglugerða og að aðstæður íbúa séu öruggar.

Ef þú veist af eða hefur ástæðu til að ætla að fólk búi við óviðunandi húsnæðisaðstæður er hægt að senda ábendingu. Ábendingar eru nýttar til að meta hvort tilefni sé til frekari skoðunar.

Notast má við ábendingagátt sem er að finna á vef Reykjanesbæjar eða með því að senda tölvupóst á
byggingarfulltrui@reykjanesbaer.is