Nýjast á Local Suðurnes

Spánn sinnir loftrýmisgæslu í fyrsta sinn

Flugsveit spænska flughersins er væntanleg til landsins í vikunni, en þá hefst loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins. Flugsveitin samanstendur af sex F-18 orrustuþotum og allt að 130 liðsmönnum.

Um er að ræða fyrstu loftrýmisgæslu Spánar á Íslandi. Flugsveitin tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum stjórnstöðva Atlantshafsbandalagsins í Uedem í Þýskalandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland. Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli ásamt flugsveitum aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins sem sinna kafbátaeftirliti úti fyrir ströndum Íslands, segir á vef Utanríkisráðuneytisins.

Varnarmálasvið Landhelgisgæslu Íslands annast framkvæmd verkefnisins, í umboði utanríkisráðuneytisins, í samstarfi við Isavia.

Mynd: Utanríkisráðuneytið.