Nýjast á Local Suðurnes

Óeining varðandi framkvæmdir við fótboltavöll

Minnisblað frá deildarstjóra umhverfismála Suðurnesjabæjat og VSÓ Ráðgjöf varðandi hönnun og kostnaðaráætlun gervigrasvallar í sveitarfélaginu var til umræðu á bæjarráðsfundi í vikunni og samkvæmt fundargerð virðist sem fulltrúar meiri- og minnihluta séu ekki sammála um framhald mála.

Fulltrúi B lista og áheyrnarfulltri lögðu fram eftirfarandi bókun:

Með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum teljum við að engar forsendur hafi breyst varðandi staðsetningu á gervigrasvelli í sveitarfélaginu.
Í skýrslu frá Verkís, dags. maí 2022, kom fram að ódýrasti og hagkvæmasti kosturinn væri aðalvöllurinn í Sandgerði. Í kjölfarið var unnin ítarleg valkostagreining sem leiddi til sömu niðurstöðu og þar væri innviðauppbyggingin fyrir hendi.
Því leggjum við til að samþykkt verði Tillaga 2 í þeim gögnum sem koma frá VSÓ ráðgjöf um hönnunar vinnu við völlinn, þar sem áætlaður kostnaður nemur 746.070.550 kr., en það er lægri fjárhæð en í Tillögu 1, sem gerir ráð fyrir 775.852.675 kr.
Við leggjum jafnframt til að framkvæmdir hefjist sem fyrst að loknu keppnistímabili, enda liggur fyrir brýn krafa um uppbyggingu á vetraraðstöðu fyrir knattspyrnuiðkun í sveitarfélaginu.
Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins gerir ráð fyrir 300.000.000 kr., til verkefnisins á árinu 2025, sem styður að unnt sé að hefja verkið án tafar.

Tillagan felld með atkvæðum S og O lista gegn atkvæði B lista.

Fulltrúar S og O lista lögðu fram eftirfarandi bókun á móti:

Meirihluti bæjarráðs hafnar framkominni tillögu þar sem gögn málsins eru nýtilkomin frá VSÓ og þarfnast frekari skoðunar.