Margir lentu í vandræðum á Sandgerðisvegi

Fjöldi ökumanna lentu í vandræðum á Sandgerðisvegi í morgun vegna færðar, en mikill skafrenningur var á heiðinni. Þá lentu ökumenn einnig í vandræðum á veginum á milli Garðs og Sandgerðis.

Sandgerðisvegi var lokað í um þrjár klukkustundir á meðan björgunarsveitir aðstoðuðu ökumenn, en Björgunarsveitin Suðurnes var með fjóra sérútbúna bíla á svæðinu au þess sem Björgunarsveitin Sigurvon sendi sjö hópa á vettvang.

Björgunarsveitin biðlar til ökumanna að fara varlega í færslu á Facebook þar sem enn skefur vel yfir þessa vegi.