Viðskipti – Local Sudurnes

Kaupa meirihlutann í Samkaupum
Í dag var undirritaður kaupsamningur milli Orkunnar sem kaupanda og KSK, sem seljanda, um alla hluti seljanda í Samkaupum, að nafnvirði kr. 221.386.719 sem nemur 51,3% hlutafjár Samkaupa.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skel fjárfestingafélagi, eiganda Orkunnar, til Kauphallarinnar. Þar kemur einnig fram að kaupverð hlutanna er samtals 2.878 m.kr. og miðar við að verðmæti hlutabréfa Samkaupa í heild sinni (e. equity value) sé 5.610 m.kr. sem samsvarar 13 kr. á hvern útgefinn hlut. Viðskiptaverðið felur í sér að heildarvirði Samkaupa (e. enterprise value) sé 9.606 m.kr. út frá skuldastöðu í lok fyrsta ársfjórðungs.

Kaupverðið verður greitt með afhendingu á nýju hlutafé í Orkunni. Verðmæti hlutabréfa Orkunnar við uppgjör viðskiptanna verður 10.669 m.kr. og miðast við bókfært virði félagsins í ársreikningi SKEL um síðustu áramót. Orkan á jafnframt um 81% hlut í Lyfjavali sem er bókfærður á 1.928 m.kr. og einnig hlut í Samkaupum, vegna sameiningar Atlögu og Samkaupa, sem metinn er á um 545 m.kr. í viðskiptunum.

Samningur aðila gerir ráð fyrir að samstæða félaganna verði mynduð með sambærilegu sniði og skráð smásölufyrirtæki hérlendis. Samstæðan mun í upphafi starfa á sviði matvöru, orku, bílaþvottar og lyfsölu og verða sviðin rekin á samstæðugrunni.

Viðskiptin eru háð eftirfarandi skilyrðum, segir í tilkynningunni:

1. Að samruna Samkaupa og Atlögu ehf. (áður Heimkaup ehf.), kt. 430910-0190, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, samkvæmt samrunasamningnum dagsettum 20. febrúar 2025, sé lokið;

2. Að fyrir liggi skuldbindandi áskriftarloforð frá fjárfestum, eða sölutrygging íslensks banka, um áskrift að nýju hlutafé í Orkunni (eða nýju móðurfélagi samstæðu) að verðmæti a.m.k. 2.000 m.kr. sem skal nýtt til að efla fjárhagsstöðu Samkaupa;

3. Að Orkan hafi komist að skuldbindandi samkomulagi við aðra hluthafa í Samkaupum um kaup á eignarhlut þeirra í félaginu þannig að samanlagður eignarhlutur Orkunnar og annarra aðila tengdum SKEL nemi að lágmarki 90,01% í kjölfar viðskipta;

4. Samþykki fulltrúaráðs KSK;

5. Að Samkeppniseftirlitið samþykki að í viðskiptunum felist ekki samruni sem beri að ógilda eða setja skilyrði fyrir samkvæmt 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005.

Verði viðskiptin að veruleika eru aðilar sammála um að vinna í sameiningu að því að Samkaup nái vopnum sínum og vaxi á neytendamarkaði, bæði með innri og ytri vexti, og að í framhaldinu skuli stefnt að skráningu allra hluta móðurfélags samstæðunnar á skipulegan markað í Kauphöll á Íslandi fyrir árslok 2027.

Eftir uppgjör viðskiptanna og fyrirhugaða hlutafjáraukningu verður hlutur SKEL í móðurfélagi samstæðunnar um 63% og áætlað virði eignarhlutar SKEL um 13.500 m.kr. Öðrum hluthöfum Lyfjavals verður gert tilboð um að ganga inn í viðskiptin á sömu skilmálum og ofangreind viðskipti, sem og öllum öðrum hluthöfum Samkaupa, eftir að skilyrðin eru uppfyllt.

Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri SKEL, tjáir sig um málið í tilkynningunni:

„Við erum ánægð að vera skrefinu nær því að búa til nýtt afl á íslenskum smásölumarkaði. Það er í samræmi við þau markmið sem við kynntum í síðasta uppgjöri um þróun á samstæðu Orkunnar. Samkaup er félag með langa sögu og trausta viðskiptavini um allt land. SKEL mun leggja áherslu á að einfalda reksturinn, draga úr kostnaði og setja viðskiptavininn í fyrsta sæti. Þær áherslur hafa gefist vel í rekstri Orkunnar. Samkaup og Heimkaup (nú Atlaga ehf.) hafa glímt við áskoranir í sínum rekstri, með sameiningu félaganna og endurskipulagningu rekstrar verður til öflugur keppinautur á markaði.”

The post Kaupa meirihlutann í Samkaupum appeared first on Local Sudurnes.

Eigandi Prís vonast eftir að geta kynnt niðurstöðu um mögulegan samruna við Samkaup á næstu dögum
Samrunaviðræður fjárfestingafélagsins SKEL og Samkaupa vegna samruna Samkaupa og tiltekinna félaga í eigu SKEL, nánar tiltekið Orkunnar IS ehf., Löður ehf., Heimkaupa ehf. og Lyfjavals ehf. eru í fullum gangi og vonast forstjóri SKEL, Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, eftir því að geta kynnt niðurstöður á næstu dögum. SKEL er eigandi nýrrar lágvöruverðsverslunar, Prís, sem opnaði í Kópavogi á föstudag.

Viljayfirlýsing á milli fyrirtækjanna var undirrituð í maí síðastliðnum og niðurstöður áreiðanleikakannanna allra félaga liggja nú fyrir og eru samningsaðilar í frekari viðræðum.

“Viðræður okkar við Samkaup eru yfirstandandi. Áreiðanleikakönnunum er lokið og ég vonast til að við getum greint frá niðurstöðu viðræðna á næstu dögum.” Segir Ásgeir Helgi í tilkynningu sem fylgdi árshlutauppgjöri fyrirtækisins sem birt var þann 15. ágúst síðastliðinn.

The post Eigandi Prís vonast eftir að geta kynnt niðurstöðu um mögulegan samruna við Samkaup á næstu dögum appeared first on Local Sudurnes.

Endurbætur á tækjakosti skilyrði fyrir endurnýjun leigusamnings
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að framlengja leigusamningi við Íslenska aðalverktaka um leigu á námu- og efnistökurétti á landsvæði í Rauðamel við Stapafell til 31. desember 2035.

Sveitarfélagið setur þó skilyrði varðandi tækjabúnað fyrirtækisins til efnisvinnslu sem miðar að því að draga úr kolefnisspori og mengunarhættu. Þá ber fyrirtækinu að sýna sérstaka aðgát vegna nálægðar við vatnstökusvæði Lága.

The post Endurbætur á tækjakosti skilyrði fyrir endurnýjun leigusamnings appeared first on Local Sudurnes.

Stefna á metanólframleiðslu á Reykjanesi
Swiss Green Gas International stefnir á að hefja metanólframleiðslu á Reykjanesi, en Skipulagsstofnun hefur óskað umsagnar vegna vegna þessa. Fyrirhuguð framleiðsla mun fara fram á lóð sem er innan Auðlindagarðsins við Reykjanesvirkjun, við hlið fyrirhugaðrar vetnis- og metanframleiðslu á sama svæð.

Reykjanesbær gerir ekki athugasemdir við þá umhverfisþætti sem matið takur til, valkosti sem lagt verði mat á, gagnaöflun, hvernig unnið verði úr gögnunum til að meta umhverfisáhrif og hvernig þau eru sett fram, segir í fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs sveitarfélagsins.

Matsáætlun byggir á rekstri metanólverksmiðju við eðlilegar aðstæður og áhrif verksmiðjunnar á náttúru en ekki möguleg áhrif náttúru á framleiðslu metanóls innan eldvirks svæðis. Vinna þarf áhættumat, segir einnig í fundargerðinni.

The post Stefna á metanólframleiðslu á Reykjanesi appeared first on Local Sudurnes.

HS Orka tryggir 40 milljarða fjármögnun
HS Orka hefur lokið við að endurfjármagna skuldir félagsins og tryggja lánalínur fyrir áframhaldandi uppbyggingu hér á landi.

Í tilkynningu kemur fram að fjármögnunin nái til yfirstandandi stækkunar og endurbóta orkuversins í Svartsengi og er mikilvægt skref í átt að metnaðarfullum áformum um frekari vöxt félagsins í jarðvarma og vatnsafli, sem byggja á orkukostum í nýtingarflokki rammaáætlunar. Lánsfjárhæðin nemur að jafnvirði um 290 milljónum dollara eða um fjörutíu milljörðum íslenskra króna og er veitt af íslenskum og alþjóðlegum bönkum og sjóðum.

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, fagnar þessum mikilvæga áfanga í rekstri félagsins: „Við erum afar sátt við það að hafa lokið svo umfangsmikilli endurfjármögnun á sama tíma og við höfum þurft að mæta fjölbreyttum áskorunum í rekstri vegna jarðhræringa og eldsumbrota á Reykjanesskaganum síðustu misseri. Þetta undirstrikar styrk félagsins og trú jafnt innlendra sem erlendra lánveitenda á vaxtaráform okkar til framtíðar.

Það er jafnframt ánægjulegt að í hópi lánveitenda eru nýir aðilar en félagið gaf út skuldabréf á USPP (US Private Placement) markaðnum. Við erum eitt fyrsta einkarekna félagið hér á landi til að gefa út á þeim markaði og erum við stolt af því.“

The post HS Orka tryggir 40 milljarða fjármögnun appeared first on Local Sudurnes.

Tæpar 16 milljónir frá Lóu til Suðurnesja
Tilkynnt hefur verið um úthlutanir úr Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina. Í ár hljóta 27 verkefni styrk alls fyrir tæplega 139 milljónir króna., þar af fengu tvö Suðurnesjafyrirtæki styrki.

Nýsköpunarverkefnin sem hljóta styrk að þessu sinni eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg og dreifast um landið allt, segir í tilkynningu. Styrkjum úr Lóu er ætlað að styðja við eflingu byggða og landshluta með nýskapandi verkefnum, auk þess að hlúa að vistkerfi nýsköpunar á landsbyggðinni.

Opus Futura hlaut styrk upp á  9,5 milljónir, en fyrirtækið hefur í þróun veflausn sem para saman einstaklinga og störf á sjálfvirkan hátt sem er mun nákvæmari en hingað til hefur veirð gert. Um er að ræða byltingarkennda nýjung í því hvernig bakgrunnur, menntun, reynsla ðg persónubundnuir þættir eru metnir og settir fram í ráðningarferli.

Mannvirki og malbik ehf. Hefur undanfarin misseri hannað Öryggiskrossinn, sem er nýsköpunarvara sem er handunnin hér á landi, notuð til tímabundinna lokana á flugbrautum og akbrautum alþjóðaflugvalla um allan heim. Tveir vöruflokkar, flugbrautakross og akbrautakross, hafa þegar selst til nokkurra flugvalla í Evrópu og eru þrír vöruflokkar til viðbóta nú í þróun. Fyrirtækið hlaut rúmlega 6 milljóna styrk.

The post Tæpar 16 milljónir frá Lóu til Suðurnesja appeared first on Local Sudurnes.

Samið um fullnaðarfrágang leikskóla
Reykjanesbær og Tindhagur hafa  undirritað samning um fullnaðarfrágang leikskólans Asparlautar í Hlíðarhverfi. Alls bárust 4 tilboð í verkið. Eitt var dæmt ógilt en af hinum þremur reyndist verktakafyrirtækið Tindhagar hafa hagstæðasta tilboðið og áætlað er að verklokin verði þann 15. desember næstkomandi.

Leikskólinn, sem verður 6 deilda, mun þjóna 126 börnum frá 18 mánaða aldri og þar munu starfa 35 starfsmenn.

Vegna rakavandamála í leikskólanum Garðaseli hefur verið ákveðið að starfsemin hans með um 90 börn flytji til Asparlautar um áramótin og nýr leikskóli verði byggður á lóðinni á Garðaseli. Því munu 30 ný leikskólapláss bætast við með tilkomu Asparlautar.

The post Samið um fullnaðarfrágang leikskóla appeared first on Local Sudurnes.

Áhugi á að kaupa kísilverksmiðjuna í Helguvík
Er­lend­ir aðilar eiga nú í viðræðum við fulltrúa Arion banka, en þeir munu hafa áhuga á að kaupa og flytja úr landi kís­il­málm­verk­smiðjuna í Helgu­vík.

Morgunblaðið fjallar um málið og ræddi við Kjart­an Má Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóra Reykja­nes­bæj­ar, sem staðfest­i þetta. Kjartan Már bend­ir þó á að slík­ar viðræður hafi staðið yfir við aðra er­lenda aðila áður , en samn­ing­ar ekki náðst.

The post Áhugi á að kaupa kísilverksmiðjuna í Helguvík appeared first on Local Sudurnes.

Fengu 100 milljónir króna úr þrotabúi
Skiptum er lokið úr þrotabúi Norðuráls Helguvík ehf.. Reykjaneshöfn var annar af tveimur samþykktum kröfuhöfum og var hlutur hafnarinnar 22,68% eða rétt tæpar 100 milljónir króna.

Reykjaneshöfn var annar af tveimur samþykktum kröfuhöfum, en hinn var erlent móðurfélag fyrirtækisins sem fékk þá rúmlega 300 milljónir af þeim rúmu 400 milljónum króna sem voru til skiptana úr þrotabúinu.

The post Fengu 100 milljónir króna úr þrotabúi appeared first on Local Sudurnes.

Skel og Samkaup framlengja viðræðum um samruna
Fjárfestingafélagið Skel og Samkaup hafa ákveðið að framlengja sam­runa­við­ræðum, sem hafa staðið yfir undanfarið til 15. maí næstkomandi, en niðurstöður áttu að liggja fyrir á föstudag.

„Í ljósi þess að við­ræður aðila, sem lúta m. a. að heildar­mati á við­skipta­legum og sam­keppnis­legum sjónar­miðum, eru yfir­standandi hafa aðilar komist að sam­komu­lagi um að fram­lengja,” segir í Kaup­hallar­til­kynningu.

Fjár­festinga­fé­lagið, sem stýrt er af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, stofnanda Bónus, hefur í huga að sam­eina Sam­kaup við Orkuna og Heim­kaup, sem eru nú þegar í eigna­safni Skeljar.

Sam­kaup, sem er með höfuðstöðvar í Reykjanesbæ, rekur 64 mat­vöru­verslanir víðs vegar um landið undir fjórum vöru­merkjum: Sam­kaup, Nettó, Kjör­búðin og Iceland.

The post Skel og Samkaup framlengja viðræðum um samruna appeared first on Local Sudurnes.

HS Orka opnar skrifstofu í Krossmóa
HS Orka hafa undirritað leigusamning til sjö ára um skrifstofuhúsnæði KSK Eigna í Krossmóa 4a í Reykjanesbæ. Þar munu 12-15 starfsmenn HS Orku verða staðsettir að staðaldri en aðrar starfsstöðvar fyrirtækisins verða eftir sem áður í Svartsengi, Reykjanesvirkjun og Turninum í Kópavogi. Um þriðjungur af 90 manna starfsliði HS Orku er búsettur á Suðurnesjum og starfa flestir þeirra í orkuverunum tveimur eða í Krossmóa.

Samhliða flutningum í Krossmóa hefur aðstaða fyrirtækisins í Turninum í Kópavogi verið stækkuð til að rúma betur annað starfsfólk sem áður hafði aðsetur í Svartsengi. Flutningarnir koma í kjölfar þess að ekki er talið óhætt að flytja alla starfsemi fyrirtækisins í bráð í höfuðstöðvar þess í Svartsengi eftir umbrot síðustu fjögurra mánaða.

Samningar um leigu í Krossmóa undirritaðir

Vinnustaður á hrakhólum

Starfsemin í Krossmóa hafði áður fast aðsetur í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Svartsengi en jarðhræringar og eldsumbrot síðustu mánaða valda því að óvíst er hvort og þá hvenær hægt verður að snúa þangað á nýjan leik. Í dag er lágmarksmannskapur þar við störf, einkum við rekstur orkuversins, en fyrir náttúruhamfarirnar í nóvember höfðu nær allir 90  starfsmenn HS Orku starfsaðstöðu í Svartsengi.
Skrifstofurnar nýju eru á annari hæð í Krossmóa. Þær eru rúmgóðar og bjartar en þar verða 12 fastar starfsstöðvar auk þess sem nokkur dagborð verða aðgengileg fyrir annað starfsfólk fyrirtækisins. Einnig er í húsnæðinu góð aðstaða til fundahalda.

Hornsteinn í héraði

Gaman er að geta þess að HS Orka hefur nú komið sér fyrir á svipuðum slóðum þar sem samningar voru gerðir við landeigendur á frægum hitafundi fyrir rétt um 50 árum. Sá fundur lagði grunninn að Hitaveitu Suðurnesja en fundurinn stóð langt fram eftir nóttu og var einmitt haldinn steinsnar frá Krossmóa, í Iðnskóla Suðurnesja þar sem Fjölbrautarskóli Suðurnesja stendur nú. Hitaveita Suðurnesja var stofnuð 31. desember árið 1974 sem sannkallaður hornsteinn í héraði og fagna fyrirtækin tvö sem byggja á þeim grunni, HS Orka og HS Veitur,  því hálfrar aldar afmæli í árslok.

Betrumbætt aðstaða í Turninum

Á sama tíma var einnig gengið frá nýjum leigusamningi við Fasteignafélagið Eik en HS Orka hefur tekið á leigu 16. hæðina í Turninum í Kópavogi og hefur þegar flutt starfsemi sína þangað. Fyrirtækið hafði áður til afnota lítinn hluta af 17. hæð Turnsins en á grundvelli þeirrar óvissu sem uppi hefur verið í húsnæðismálum í Svartsengi síðustu fjóra mánuði var sú ákvörðun tekin að flytja þangað alla aðra skrifstofustarfsemi í Turninn en þá sem nú er komin í Krossmóa. Því var þörf á stærra rými og þykir 16. hæðin henta vel en ætla má að að á fimmta tug starfsmanna muni hafa þar vinnuaðstöðu að staðaldri.

The post HS Orka opnar skrifstofu í Krossmóa appeared first on Local Sudurnes.

Þorbjörn hefur vinnslu í Grindavík
Útgerðarfélagið Þorbjörn hefur hafið vinnslu í Grindavík. Vinnsla hófst á þriðjudag við pökkun á saltfiskafurðum og frágangi til útflutnings.

Að jafnaði voru við vinnu 20-25 manns áður en bærinn var rýmdur, samkvæmt vef Fiskifrétta, sem greina frá, en 10-12 manns verða við pökkunina næstu daga.

The post Þorbjörn hefur vinnslu í Grindavík appeared first on Local Sudurnes.

Orkan opnar hraðhleðslustöð á Fitjum
Orkan hefur tekið í notkun 500 kW hraðhleðslustöð á Fitjum í Reykjanesbæ.

Í tilkynningu á Facebook-síðu fyrirtækisins kemur fram að átta stæði séu á stöðinni, CCS tengi og eitt CHAdeMO tengi.

The post Orkan opnar hraðhleðslustöð á Fitjum appeared first on Local Sudurnes.

Með bakþanka um starfssemi í Reykjanesbæ vegna umræðu um eldsumbrot
Fyrirtæki, sem eru að skoða möguleika á að setja upp starfsstöðvar í Reykjanesbæ eru með bakþanka vegna umræðu um eldsumbrot á Reykjanesskaga, um er að ræða bæði erlend og innlend fyrirtæki.

Þetta kom fram í máli Kjartans Más Kjartanssonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar í viðtali við fréttastofu RÚV. Fram kom í máli Kjartans að ekkert þeirra hafi þó hætt við að flytja starfsemi sína til sveitarfélagsins vegna umræðunnar.

Kjartan Már bendir meðal annars á að umræða í fjölmiðlum um að Keflavíkurflugvöllur gæti verið í hættu vegna eldsumbrota hafi skotið fyrirtækjum skelk í bringu. „Vegna þess að umræðan um Reykjanesskaga finnst okkur þannig að hér sé allt að rifna í sundur, en það er alls ekki þannig,“ segir hann í viðtali við RÚV.

Í gegnum Reykjanesskaga liggja flekaskil Norður-Ameríku- og Evrópuflekans, sem eiga sinn þátt í að skapa þá auðlind sem jarðhitinn er. Eldsumbrotin eru öll á sunnanverðum Reykjanesskaga „og það er allt aðrar bergtegundir meira að segja hér norðar og á þessari tá sem Keflavíkurflugvöllur er á, Reykjanesbær og Suðurnesjabær.“

„Þar eru allt önnur jarðlög og allt aðrar bergtegundir. Við erum að reyna að koma þeim skilaboðum til þessara samstarfsaðila okkar verðandi,“ segir Kjartan Már.

Þær upplýsingar sem hann vilji koma á framfæri eru liður í því sem hann segir að öllum ætti að vera óhætt á þessum nyrðri hluta Reykjanesskagans.

The post Með bakþanka um starfssemi í Reykjanesbæ vegna umræðu um eldsumbrot appeared first on Local Sudurnes.

Vísir hefur vinnslu í Helguvík
Útgerðarfélagið Vísir í Grindavík mun hefja saltfiskuvinnslu í Helguvík í næstu viku.  Starfsmenn útgerðarfélagsins fengu leyfi til að fara inn í Grindavík í dag til að bjarga afurðum og flytja tæki, en samkvæmt frétt á vef RÚV töldu Almannavarnir best að þessum flutningum yrði lokið í dag svo þungaflutningarnir stæðu ekki yfir þegar íbúar fá að vitja heimila sinna á morgun.

Þótt svo saltfisklínan hafi verið flutt breytir það engu um getu Vísis til að hefja starfsemi aftur í Grindavík um leið og leyfi fæst til þess, segir framkvæmdastjóri Vísis, í samtali við fréttastofu RÚV, enda hinar sjö línurnar á sínum stað.

Framkvæmdastjórinn segir aðgerðirnar tvíþættar. Annars vegar hafi þeir flutt burt afurðir sem voru unnar áður en bærinn var rýmdur og voru tilbúnar til útflutnings og hinsvegar flutningur á framleiðslulínu af saltfiski yfir í Helguvík sem verður sett í gang í næstu viku. Markmiðið er að bjarga fyrir horn vertíðinni í saltfiski.

The post Vísir hefur vinnslu í Helguvík appeared first on Local Sudurnes.