sudurnes.net
Wizz Air flýgur beint til Budapest og Varsjár allt árið um kring - Local Sudurnes
Ungverska lággjaldaflugfélagið Wizz Air hefur hafið flug á milli Keflavíkurflugvallar og Budapest í Ungverjalandi. Budapest er annar áfangastaður Wizz Air frá Íslandi en félagið flýgur einnig til Gdansk í Póllandi. Í maí á þessu ári bætir félagið þriðja áfangastaðnum við, Varsjá í Póllandi. Flogið verður tvisvar í viku til Budapest, á miðvikudögum og sunnudögum, allt árið um kring. Haldið var upp á hina nýju flugleið á Keflavíkurflugvelli í gær og bauð Isavia farþegum upp á léttar veitingar í tilefni dagsins. Farþegar Wizz Air fengu veitingar í boði Isavia í tilefni af nýju flugleiðinni Wizz Air er sem áður segir ungverskt flugfélag og stærsta lággjaldaflugfélagið í Mið- og Austur-Evrópu. Félagið hóf flug á milli Gdansk og Keflavíkurflugvallar í júní í fyrra, fyrst tvisvar í viku en fjölgaði ferðum fljótlega upp í þrjár. Nú bætist annar áfangastaðurinn við og sá þriðji, Varsjá, í maí. Það er því ljóst að félagið bindur miklar vonir við Ísland sem áfangastað. Meira frá SuðurnesjumWizz Air flýgur til Vilnius – Verður eitt umsvifamesta erlenda flugfélagið hér á landiMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkWizz Air með beint flug milli Keflavíkur og KrakáFlug á milli Keflavíkur og Akureyrar: Sjö af hverjum tíu eru útlendingarÍAV leggur sjávarlögn fyrir HS [...]