Nýjast á Local Suðurnes

Volkswagen semur við Verne Global – Nýta sér ofurtölvur við hönnun

Gagnaverið Verne Global, sem er staðsett á Ásbrú í Reykjanesbæ, hefur samið við Volkswagen um að stór hluti gagnavinnslu bílaframleiðandans muni fara fram í gagnaverinu. Frá þessu er greint á vef Viðskiptablaðsins.

Volkswagen hefur verið að nýta sér ofurtölvur til að stytta hönnunartíma, bæta hönnun á bílum sínum og vinna að bestun í bílaumferð. Þýski bílaframleiðandinn BMW hefur nýtt sér þjónustu Verne Global um nokkurra ára skeið, í sama tilgangi.