United Silicon hefja framleiðslu um miðjan júlí
Gert er ráð fyrir að klára byggingu kísilvers United Silicon þann 30. júní næstkomandi og hefja framleiðslu þann 15. júlí. Norskir sérfræðingar koma til landsins í byrjun júlí til að þjálfa starfsfólkið og er búist við að framleiðslan verði komin á fullt í lok júlí. Þetta kemur fram í viðtali Viðskiptablaðsins við Magnús Garðarsson, einn eigenda verksmiðju United Silicon.
Magnús segir í viðtalinu við Viðskiptablaðið að markaðurinn hafi verið í smá lægð að því leyti að verð á kísilmálmi hafi lækkaði töluvert á seinni hluta síðasta árs og aftur í vetur. Ljóst sé því að fyrirtækið sé að hefja framleiðslu á erfiðum tíma.
„Verðið er rétt byrjað að hækka aftur núna. Staðan á þessum markaði er nokkuð sérstök. Eftirspurnin hefur aldrei verið meiri en á sama tíma hefur framleiðsla aukist mjög mikið.
Það er alveg ljóst að við erum að koma inn á þennan markað á erfiðum tíma og munum ekki hagnast mikið fyrstu árin. Aftur á móti höfum við mikla trú á verkefninu til lengri tíma enda gera spár ráð fyrir að eftirspurnin muni aukast ár frá ári. “