sudurnes.net
United Silicon fær fyrsta ofninn afhentann - Local Sudurnes
Tímamót urðu á dögunum við byggingu kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík þegar félagið tók á móti 32 megavatta ofni fyrir fyrsta áfanga verksmiðjunnar. Ofninn kemur frá Tenova Pyromet og mun framleiða um 21.500 tonn af kísli á ári. Hefst framleiðsla næsta vor. Þegar hefur verið hafist handa við að setja ofninn saman á ný en hann var settur saman á Ítalíu í maí til prufu og er von á næstu sendingu með meiri framleiðslubúnaði strax í næsta mánuði, samkvæmt tilkynningu frá félaginu. Að sögn Helga Björns, yfirverkfræðings hjá United Silicon, miðar vinnu á lóð félagsins vel. ÍAV sér um byggingu ofnhús auk annarra bygginga fyrir United Silicon. ,,Þessi ofn er fyrsti áfanginn í fjögurra ofna verksmiðju þannig að þetta er mikið fagnaðarefni að hann sé nú kominn til landsins. Hönnun lóðar og verksmiðjunnar í heild sinni hefur alltaf miðað við að hér gæti staðið fjögurra ofna verksmiðja þegar kísilmarkaður og raforkuframboð gæfi tilefni til,” segir Helgi Björn. Gildandi starfsleyfi United Silicon miðast við fyrir fjögurra ofna verksmiðju með ársframleiðslu upp á 100.000 tonn. United Silicon er íslenskt félag í meirihlutaeigu Íslendinga og meðal fjárfesta eru samtals 24 íslenskir, hollenskir og danskir einstaklingar ásamt 8 íslenskum lífeyrissjóðum. Meira frá SuðurnesjumFá niðurstöður mælinga vegna [...]